Það sem virkar kynæsandi á bæði kynin eru sambland af mörgum þáttum. Einn af þeim þáttum sem hefur virkilega kynæsandi áhrif er þegar konan klæðist fallegum blúndunærfötum og lætur það vera að afklæðast t.d. undirkjól, nælonsokkum, nærbuxum eða brjósthaldara. Mörgum körlum finnst hjúpuð nekt meira spennandi en nektin ein. Þá geta þeir gefið ímyndunaraflinu lausan tauminn. Kona sem gefur sér góðan tíma til að afklæðast og lætur sem af tilviljun sjái í nakið hold, getur verið viss um að æsa rekkjunaut sinn. Mörgum konum finnst líka æsandi þegar karlmaðurinn heldur eftir e-hverri flík en sokkar teljast þó ekki með þeim flíkum.
Margar konur kjósa líka að karlinn afklæði þær. Þannig geta þær sýnt líkama sinn óbeint og af hlutleysi án þess að vera of frakkar kynferðislega. Ef konan fellir vísvitandi hverja flíkina af annarri með dramatískum tilþrifum hefur það undanteknigalaust mjög kynæsandi áhrif á karlinn. Kynæsing beggja ætti að magnast með hverri spjör sem fækkað er.
Kossar geta líka verið mjög kynæsandi. Kona getur fundið fyrir áhrifum hans í brjóstum og sköpum og oft getur kossinn einn nægt til að veita konunni fullnægingu. Hjá pari þar sem aðdráttaraflið er mjög sterkt getur koss verið eins og eftirlíking samfara þar sem tungan fer inn í munninn með viðlíka ákefð og limurinn í líkama konunnar.