Forsíða Skilmálar Hafðu samband Þriðjudagurinn 7. sept
. Vöruflokkar .
Fyrir hana
Fyrir hann
Fyrir bæði
Krem & olíur
Spil & leikir
Bindileikföng
Fatnaður
Latex & PVC
Búningar
Skór & stígvél
Myndefni
Gjafavara
Gjafapappír
Hreinsivörur
Rafhlöður
Karfan mín
Skoða vörur í körfu
Tæma körfu
.

Ást & Rómantík » Það sem konur sækjast eftir
Til baka

 
Það sem konur sækjast eftir í fari karla

  Útlit karla skipta konur miklu minna máli en mannkostir þeirra. Það sem flestar konur heillast af í fari karlmanna eru fyrst og fremst persónuleiki, sjálfsöryggi, framsækni, sjálfstæði og forystuhæfileikar. Til góðra kosta teljast einnig áreiðanleiki og tryggð. Þeir menn njóta mestrar kvenhylli sem reyna að láta sér semja við konur og tala þýðum rómi, frjálslega og opinskátt um sínar tilfinningar og það sem þeim finnst áhugavert.
  
   Karlmaður sem er vel á sig komin líkamlega og hefur náð góðum árangri í starfi eða íþróttum er einnig líklegur til að höfða vel til kvenna. Vöðvahnýtt kjötfjöll eru alls ekki eftirstótt hjá kvenþjóðinni. Nýþveginn líkami sem er laus við búklykt, vel hirtar hendur, hreinar fætur og vel rakað andlit eða hirðulegt skegg er það sem kvenfólki finnst mest aðlaðandi hjá karlmönnum. Þótt útlitið sé ekki aðalatriði hjá konum játa flestar þeirra að þeim þyki tilteknir líkamshlutar ástmanna sinna sérstaklega kynæsandi. En sjálf kynfærin eru sjaldnast tilgreind.

   Eftirfarandi eru nokkur góð hollráð til karla: Hugsaðu um útlitið, veltu þér ekki í bælið óþveginn og óhirtur. Sýndu henni stundum hugulsemi. Flestar konur kunna vel að meta blómvönd eða málsverð við kertaljós. Sláðu henni gullhamra vegna útlitsins, minnstu á það ef hún ilmar vel, haltu í höndina á henni, kysstu hana blíðukossum, horfðu í augu hennar og brostu til hennar. Veittu henni athygli og hlustaðu hvort sem þið eruð ein eða í hópi. Taktu ekki sjónvarpið fram yfir hana. Þegar í bólið er komið skaltu virða óskir hennar og gæta þess vel að forleikurinn verði ekki of endasleptur. Reyndu að sofna ekki um leið og þú færð fullnægingu. Talaðu við hana smástund á eftir og haltu utan um hana.  

. Topp 5 vörur .
1. Cyberegg
2. Þráðlaust egg - 7 ...
3. Spænska flugan - c...
4. ID pleasure sleipi...
5. Þráðlaus höfrungur...
.
. Ást & Rómantík .
Falleg ástarljóð
10 rómantísk ráð
Það sem karlar sæk...
Það sem konur sækj...
Hvað er kynæsandi
Hvað er ást
Hvers vegna ganga ...
.
Kynlíf
Að vera góður elsk...
Fullnæging karla o...
Góður forleikur
Að elskast með orð...
Töfrar kynlífsins
.