Forsíða Skilmálar Hafðu samband Þriðjudagurinn 7. sept
. Vöruflokkar .
Fyrir hana
Fyrir hann
Fyrir bæði
Krem & olíur
Spil & leikir
Bindileikföng
Fatnaður
Latex & PVC
Búningar
Skór & stígvél
Myndefni
Gjafavara
Gjafapappír
Hreinsivörur
Rafhlöður
Karfan mín
Skoða vörur í körfu
Tæma körfu
.

Ást & Rómantík » Hvað er ást
Til baka
                                                                                                           

  Ástin virðist hafa fylgt mannfólkinu frá örófi alda. Þegar ástin hellist yfir fólk fara ýmsar kenndir af stað og bæði líkamleg og andleg einkenni gera vart við sig. Ekkert nema kannski að eignast barn hefur jafn dásamlega vellíðan í för með sér og ást sem er endurgoldin. Ástinni svipar að mörgu leyti til vímu. Þegar fólk neytir vímuefna verður breyting á efnaskiptum í heilanum. Eitthvað sambærilegt virðist gerast þegar við verðum ástfangin. Ef ástin er víma er þar með líka komin skýringin á þeim þjáningum sem margir lenda í þegar ástarsambandi lýkur og fráhvarfseinkennin hellast yfir. Heilinn hættir að framleiða efni sem hafa haldið okkkur í ástar vímu.

   Þrátt fyrir að ekki sé vitað nákvæmlega hvað kemur ástinni af stað hafa rannsóknir þó leitt í ljós að karlar verða fyrr ástfangnir en konur. En að sama skapi leikur ástarsorg karla mun verr en konur. Það stafar að mestu af því að karlar búa ekki að jafngóðu félagslegu öryggisneti og konur. Þeir einangrast og verða oft einmana og þunglyndir eftir skilnað. Fráskildara konur fá aftur á móti mun meiri stuðning vinkvenna og fjöldskyldu.

   Þær eldheitu tilfinningar og ástríður sem flestir eru gagnteknir af í upphafi sambands haldast ekki óbreyttar áratugum saman. Þess vegna má segja að ástin varir ekki að eilífu. Í stað stundarhrifningar og losta kemur vinátta og væntumþykja. Þessi nýja ást sprettur af þekkingu á makanum og af sameiginlegri lífsreynslu. Því miður fullnægir þessa nýja vináttuást ekki öllum. Sumir sakna svo spennunnar frá upphafsdögum sambandsins að þeir fórna öllu sem búið var að byggja upp til þess að geta notið hennar aftur með einhverjum öðrum.
 
   Eftir 3-4 ár að jafnaði dregur yfirleytt jafn og þétt úr ástríðueldinum.  Líklega má rekja margt framhjáhaldið og margan hjónaskilnaðinn til þess að við höfum óraunhæfar væntingar til ástarinnar. Við viljum að hún haldi áfram að vera kynferðislega æsandi, ævintýraleg og spennandi. Samt viljum við líka að hún veiti okkur ómælt traust og framtíðaröryggi. Það er hægt að halda flestum þáttum í sambandinu gangandi ef viljinn er fyrir hendi og báðir aðilar eru tilbúnir að leggja sig fram. Ástin kostar heilmikla vinnu og það getur oft þurft að fórna ýmsu til að sætta sig við þær breytingar sem óhjákvæmilega verða á henni með tímanum.
. Topp 5 vörur .
1. Cyberegg
2. Þráðlaust egg - 7 ...
3. Spænska flugan - c...
4. ID pleasure sleipi...
5. Þráðlaus höfrungur...
.
. Ást & Rómantík .
Falleg ástarljóð
10 rómantísk ráð
Það sem karlar sæk...
Það sem konur sækj...
Hvað er kynæsandi
Hvað er ást
Hvers vegna ganga ...
.
Kynlíf
Að vera góður elsk...
Fullnæging karla o...
Góður forleikur
Að elskast með orð...
Töfrar kynlífsins
.