Forsíða Skilmálar Hafðu samband Þriðjudagurinn 7. sept
. Vöruflokkar .
Fyrir hana
Fyrir hann
Fyrir bæði
Krem & olíur
Spil & leikir
Bindileikföng
Fatnaður
Latex & PVC
Búningar
Skór & stígvél
Myndefni
Gjafavara
Gjafapappír
Hreinsivörur
Rafhlöður
Karfan mín
Skoða vörur í körfu
Tæma körfu
.

Kynlíf » Að vera góður elskhugi
Til baka
Að vera góður elskhugi
Rannsóknir hafa leitt í ljós að algengasta kvörtunarefni kvenna er að elskhugar þeirra gefi sér ekki nægan tíma í forleikinn. Flest kynlífssambönd byggjast á gagngkvæmu trausti, virðingu og langvarandi vináttu. Líkamlegt samband flestra elskenda verður smám saman nánara en einskorðast þó við blíðuhót og gælur í fyrstu. En vegna þess að í hugum margra karla eru sjálfar samfarirnar það takmark sem ber að ná eins fljótt og auðið er gerist það allt of oft að áhuginn á nánum samtölum og forleik dvínar og niðurstaðan verður alsherjar vonbrigði fyrir konuna.
Allur forleikurinn frá kossum, knúsi , brjósta og skapagælum er gjörsamlega ómissandi ef konan á að njóta samfaranna og fá fullnægingu. Án þeirra nýtur konan ekki kynferðislegrar örvunar, hún verður þvinguð í ástarleiknum og ekki einu sinni reiðubúin líkamlega. Verst er þó að eftir samfarirnar er hún enn ófullnægð, bitur og glaðvakandi á meðan elskhugi hennar snýr baki og svífur inn í draumaheiminn.
Það sem góður elskhuga þarf að gera er að halda aðeins aftur af kynlönguninni í byrjun og vera tilfinninganæmari. Hann þarf að snerta, gæla, kyssa og spyrja hana  hvað það virkilega er sem henni líkar best. Góður elskhugi gerir kynlífið líka líflegt og spennandi með ýmsum aðferðum og stellingum. Hann notar ímyndunaraflið eins og kostur er. Það er sérstaklega mikilvægt þegar ástarsamband hefur staðið lengi og hætt er við að leiði geti dregið úr kynnautninni. Taktu vel í tillögur elskanda þíns um að lífga upp á kynlífið. Flestar kynferðislegar athafnir mannanna eru mjög hefðbundnar og þess vegna er vel þess virði að prófa hvort eitthvað nýtt veitir ykkur ánægju, svo framarlega sem það er ekki sársaukafullt eða kemur illa við ykkur. Í kynlífinu er alltaf best að láta eðlishvötina ráða ferðinni.
. Topp 5 vörur .
1. Cyberegg
2. Þráðlaust egg - 7 ...
3. Spænska flugan - c...
4. ID pleasure sleipi...
5. Þráðlaus höfrungur...
.
. Ást & Rómantík .
Falleg ástarljóð
10 rómantísk ráð
Það sem karlar sæk...
Það sem konur sækj...
Hvað er kynæsandi
Hvað er ást
Hvers vegna ganga ...
.
Kynlíf
Að vera góður elsk...
Fullnæging karla o...
Góður forleikur
Að elskast með orð...
Töfrar kynlífsins
.